Sjóminjasafnið VÍKIN er með DVD til sölu bæði á ensku og íslensku.
BJÖRGUN OG BARÁTTA, vs ÓÐINN Í 50 ÁR.
Varðskipið Óðinn kom til landsins árið 1960 og var starfræktur í tæplega hálfa öld, til 2006. Hann hefur nú verið gerður að safni um sögu Landhelgisgæslunnar og þorskstríðanna.Óðinn býr yfir sögu um fjölbreytilega atburði, allt frá árekstrum við bresk herskip yfir í hey- og sjúkraflutninga í afskekktum byggðum. Hann var notaður í öllum þorskastríðunum þremur og lenti þá í tíðum átökum við breska flotann milli þess sem hann skar troll aftan úr togurum. Á friðartímum bjargaði hann alls um 200 skipum frá strandi eða eyðileggingu af völdum eldsvoða. Saga skipsins höfðar greinilega til íslenskra skólabarna jafnt sem erlendra ferðamanna.
Viðmælendur:
Berent Sveinsson loftskeytamaður
Guðjón Petersen stýrimaður
Guðmundur Hallvarðson formaður Sjómannadagsráðs
Halldóra Ragnarsdóttir aðstoðarmaður, messi
Kristján Þ. Jónsson stýrimaður og skipherra
Ólafur Valur Sigurðsson skipherra
Sigurður Steinar Ketilsson stýrimaður og skipherra
Sigurjón Hannesson stýrimaður og skipherra
Sæmundur Ingólfsson vélstjóri
Torfi Geirmundsson háseti og bátsmaður
Aðstandendur:
Leikstjórn: Guðbergur Davíðsson
Handrit: Helgi Máni Sigurðsson
Klipping: Hermann H. Hermannsson
Hljóðsetning: Gunnar Árnason
Þularlestur: Hermann H. Hermannsson
Tónlist: Ólafur Þórarinson
Styrktaraðilar:
Sjómannafélag Íslands
Sjómannadagsráð
Félag skipstjórnarmanna
Félag vélstjóra og málmiðnaramanna
Matvís
Grandi hf
Hagþenkir
Pósthólf 5481 • 125 Reykjavík • info@ljosop.is